Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar,Öllum hnútum kunnug, ímyndunarafl
    Einn af hápunktum ársins í heimi hönnunar er hönnunarvikan í Stokkhólmi fer fram í febrúar ár hvert. Íslenskir hönnuðir kynntu þar áhugaverkt verkefni í þetta sinn, sem enn er til sýnis í Stokkhólmi, verk sem kallast Knowing the Ropes , eða Öllum hnútum kunnug. Verkefnið er unnið á mörkum hönnunar og myndlistar og skoðar táknræna vídd reipisins í norrænni samtímamenningu, en grunnur þess hverfist um tvær kaðlaverksmiðjur; Hampiðjuna í Reykjavík og Aarhus Possementfabrik í Danmörku. Brynhildur Pálsdóttir hönnuður verður gestur okkar í dag og segir okkur frá verkefninu og því sem hæst bar í Stokkhólmi.
    Og Freyja Þórsdóttir flytur sinn þriðja pistil á heimspekilum nótum. Að þessu sinni fjallar hún um ímyndunaraflið sem okkar merkilegustu og hættulegustu gjöf og hvaða áhrif það hefur á merkingarbær tengsl okkar við heiminn.
    En við byrjum í leikhúsinu. Leikhópurinn Alltaf í boltanum stendur að sýningunni Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar sem frumsýnd verður í Tjarnarbíó annað kvöld. Verkið skyggnist inn í hvernig enskir knattspyrnuleikir krydda líf fjögurra íslenskra karlmanna. Tilfinningar þeirra fá lausan tauminn og spennan, innan sem utan vallar, eykst með framvindu leiksins svo úr verður óútreiknanleg atburðarás sem spannar 90 mínútur. Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir leit við á æfingu leikhópsins og ræddi við leikstjórann, Viktoríu Blöndal og einn leikaranna, Albert Halldórsson.
    Umsjón: Halla Harðardóttir
    55 min
  • Hjónaband rauðu fiskanna, Ghost Choir, Jarðsetning
    Tveir félagar úr hljómsveitinni Ghost Choir verða gestir þáttarins í dag. Sveitina mynda Hannes Halldórsson, Magnús Tryggvason Elíassen, Pétur Hallgrímsson og Jóhannes Birgir Pálmason en þeir Hannes og Magnús kíkja í spjall til okkar. Ný út er komin glæsileg tveggja vínilplatna útgáfa sem heitir Cosmic Cedar, þetta er önnur plata Drauga-kórsins en við þessa fjórmenninga bætast síðan einir sex aðrir tónlistarmenn og úr verður seiður sem ýmist fer með mann eitthvert langt út í geim eða út í snarkandi eyðimörkina. Við heyrum af Ghost Choir og tónlistinni á nýju plötunni sem er innblásin mjög af tónlist miðausturlanda.
    Við ætlum einnig að kynna okkur í dag mexíkóskan rithöfund sem er einn sá vinsælasti í hinum spænskumælandi heimi. Rithöfund sem hefur mikið velt fyrir sér tengslum mannskepnunnar við dýr og plöntur., og sem er nú loks komin út á íslensku. ?Tengsl dýra og manna geta verið jafn flókin og þau sem sameina okkur mannfólkið,? skrifar Guadalupe Nettel, í smásagnasafninu Hjónaband rauðu fiskanna. Kristín Guðrún Jónsdóttir þýddi nýverið þetta athyglisverða smásagnasafn úr spænsku og hún verður gestur okkar í dag.
    Og Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í Jarðsetningu eftir Önnu Maríu Bogadóttur, bók sem hlaut nýverið tilnefningu Hagþenkis.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir
    55 min
  • Óbragð, verkföll, Vatnið og landið
    Í dag kemur út skáldsagan Óbragð. Þetta er fyrsta skáldsaga höfundarins, Guðrúnar Brjánsdóttur, en hún vann samkeppni Forlagsins, Nýjar raddir 2020, með nóvellunni Sjálfstýringu. Óbragð fjallar um verkfræðinemann Hjalta og leit hans að sjálfum sér, en hann virðist hafa misst fótana eftir Covid einangrun, fær kvíðaköst og er með þráhyggju. En líf hans tekur óvæntan snúning þegar hann kynnist Kakófylkingunni, sem er hópur leitandi fólks sem finnur innri ró með hjálp kakós frá Guatemala. Við ræðum við höfund Óbragðs í þætti dagsins.
    Ragnheiður Gyða Jónsdóttir heldur áfram að fjalla um verkföll, í þessum síðasta pistli sínum teygir Ragnheiður Gyða sig í átt að okkar dögum, en þó ekki alla leið.
    En við hefjum þáttinn á að líta inn á Listasafnið á Akureyri. Þar er einnig að finna sýningu á verkum Kristínar Jónsdóttur frá Munkaþverá, Vatnið og Landið. VIð ræðum við Hlyn Hallsson um verk Kristínar.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir
    55 min
  • Hreinsunaraðferðir, Stephen Hough, bókmenntaverðlaun og Brimhólar
    Rétt fyrir hádegi í dag var tilkynnt um tilnefningar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í ár. Ljóðabók­in Laus blöð eft­ir Ragn­ar Helga Ólafs­son, sem Bjart­ur gef­ur út, og skáld­sag­an Ljós­gildr­an eft­ir Guðna Elís­son, sem Les­stof­an gef­ur út, eru til­nefnd­ar til verðlaunanna fyr­ir Íslands hönd. Dómnefndir Norðurlandanna til­nefna í ár sam­tals 14 verk til verðlaun­anna, en sam­eig­in­leg nor­ræn dóm­nefnd vel­ur vinn­ings­hafa árs­ins og verða verðlaun­in af­hent við hátíðlega at­höfn í tengsl­um við 75. þing Norður­landaráðs í Osló 31. októ­ber. Jórunn Sigurðardóttir, bókmenntasérfræðingur Rásar 1, var í Gunnarshúsi í morgun og við fáum hana til að líta við hér í upphafi þáttar og leggja lauslegt mat á tilnefningarnar.
    Og við heyrum nánar af verkum hins tilnefnda bókmenntafræðings og rithöfundar, Guðna Elíssonar, því Gréta Sigríður Einarsdóttir, bókmenntarýnir Víðsjár, rýnir í dag í aðra skáldsögu Guðna. Sú heitir Brimhólar og kom út hjá Lesstofunni í nóvember síðastliðnum.
    Í kvöld mun bresk-ástralski stórpíanistinn Stephen Hough leika hinn tilfinningaþrungna og sívinsæla píanókonsert nr 2 eftir Sergei Rachmaninov á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborg. Við tökum aðeins púlsinn á þeim merkilega manni og hitum með því upp fyrir kvöldið sem margir unnendur klassískrar tónlistar hafa beðið eftir með tilhlökkun.
    Við lítum líka við í safnaðarheimili Neskirkju, þar sem myndlistarmaðurinn Arnar Ásgeirsson var í óða önn við uppsetningu á verkum sínum í morgun, fyrir sýningu sem opnar næsta sunnudag og ber titilinn Hreinsunaraðferðir. Þar fara stæltir karlmannslíkamar í plastflöskuformi, sem minna helst á grískar eða rómverskar styttur, líkama krists eða jafnvel hinu ikonísku Jean Paul Gaultier ilmvatnsflösku sem finna má í mörgum unglingsherbergjum. En í þessum flöskum er ekki að finna ilmvatn eða heilagt vatn, heldur ýmsar hreinsivörur, svo sem klósetthreinsi, spritt, uppþvottasápu og jafnvel klór. Arnar segir okkur nánar af sýningunni og hugmyndafræðinni á bakvið Hreinsunaraðferðirnar.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Melkorka Ólafsdóttir
    55 min
  • Svipmynd af Pétri Gunnarssyni
    Íslensku þýðingaverðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn á Gljúfrasteini um síðustu helgi. Handhafi þeirra í ár er Pétur Gunnarsson, fyrir þýðingu sína á stórvirki Jean-Jacques Rousseau, Játningunum. Pétur fagnar um þessar mundir fimmtíu ára rithöfundarafmæli og er gestur okkar í svipmynd Víðsjár þessa vikuna.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Melkorka Ólafsdóttir
    55 min
  • Andardráttur á glugga, tónlistarmiðstöð, Litháarnir við Laptevhaf
    Listasafn Reykjavikur heldur áfram að kynna ný verk starfandi listamanna í Ásmundarsafni, þar sem þau kallast á við myndheim Ásmundar Sveinssonar. Nú er það myndlistarkonan Sigga Björg sem á í samtali við Ásmund, og áherslan í þetta sinn er á þjóðsögur, ævintýri og ímyndunarafl. Á sýningunni Andardráttur á glugga sýnir Sigga BJörg teikningar, veggverk og vidjóverk. Meira um það hér undir lok þáttar, þegar við hittum Siggu Björg í Ásmundarsafni.
    Gauti Kristmannsson heldur áfram að fjalla um nýútkomnar bækur, og að þessu sinni er það þýðing á litháískri bók: Litháarnir við Laptevhaf, eftir Daliu Grinkevitjúte, í þýðingu Geirs Sigurðssonar og Vilmu Kinderyté.
    En við hefjum þáttinn á heimsókn í eitt af ráðuneytum borgarinnar. Fram eru komin á hinu háa alþingi íslendinga tvö mál er varða umhverfi tónlistarsköpunar í Íslandi: frumvarp til tónlistarlaga og þingsályktunartillaga um tónlistarstefnu fyrir árin 2023 til 2030. Og eitt að því sem ráðgert í þessum plöggum er stofnun nýrrar tónlistarmiðstöðvar. Við ræðum við Bryndísi Jónatansdóttur um framtíðarsýn þegar kemur að umgjörð um íslenska tónlist.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir
    55 min
  • Verðlaun fyrir Sjón, forn verkföll og Konstrúktívur vandalismi
    Víðsjá dagsins hefst á gleðitíðindum úr bókmenntalífinu. Tilkynnt var um það í hádeginu að rithöfundurinn og skáldið, handrits- og textahöfundurinn Sjón, Sigurjón Birgir Sigurðsson fái árið 2023 hin svokölluðu Norrænu verðlaun Sænsku Akademíunnar fyrir framlag sitt til fjölbreyttra bókmennta og texta ýmis konar. Við skjótumst í heimsókn og hittum höfundinn að þessu tilefni.
    Ragnheiður Gyða Jónsdóttir heldur áfram að rekja sig í gegnum forn verkföll. Ragnheiður Gyða er með hugann við Grikkland, þá miklu lýðræðis og menningarvöggu vesturlanda. Kvennaverkfall úr leiklistarsögunni verður tekið fyrir.
    Við höldum líka í Hverfisgallerí og spjöllum við Daníel Magnússon myndlistarmann sem þar býður upp á Konstrúktívan vandalisma, eða það er a.m.k. heitið á einkasýningunni hans þar á bæ. Daníel er í verkunum að velta fyrir sér horfinni heimsmynd, þeim tíma þegar jörðin var álitin í miðju sólkerfisins okkar áður en annað kom í ljós. Listin er einræði segir Daníel, við heyrum nánar af því hér í síðari hluta Víðsjár í dag. Við sögu koma út- og innhöf, myndgert blátt hljóð, hárspennur og heiti á klámstjörnum, gömlum og nýjum.
    55 min
  • Ferðalag í gömul sár, Lamento í frönsku útvarpi og mýkt sem styrkur
    Páll Ragnar Pálsson tónskáld, er nýkominn heim frá París þar sem hann var við upptökur á kammerverkinu Lamenta. Það var franska ríkisútvarpið, Radio France, sem pantaði hjá honum verkið eftir að hann hlaut fyrstu verðlaun á alþljóðlega tónskáldaþinginu Rostrum. Við heyrum meira af því ævintýri í þætti dagsins.
    "Það þarf ekki bara eitthvað eitt leikhúsverk, það þarf mörg leikhúsverk, það þarf margar bækur, margar bíómyndir. Það eru svo ótal margir vinklar og margt sem þarf að skoða, margt sem er óþægilegt og margt erfitt," segir Eva Rún Snorradóttir, sviðshöfundur, en í verkinu Góða ferð inn í gömul sár, sem sýnt er í Borgarleikhúsinu um þessar mundir, freistar hún þess að gera upp HIV faraldurinn á Íslandi með heimilda- og þátttökuleikúsi. Við hittum Evu Rún og fáum að vita meira.
    Og í dag fáum við pistil frá Freyju Þórsdóttur, heimspekingi, sem steig hér á stokk með sinn fyrsta pistil fyrir 2 vikum síðan og verður hér með okkur fram á vorið. Í dag Freyja fjallar í dag um leiki lífsins og mýkt sem styrk. Í því samhengi skoðar hún m.a. hvaða hvernig auglýsingar stórfyrirtækja geta endurspeglað úreltar hugmyndir um náttúruna, og hvaða áhrif það getur haft þegar umhyggja er ekki metin að verðleikum í samfélagi. Þjáist heimurinn mögulega af lífshættulegum umhyggjuskorti?
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    55 min
  • Svipmynd af Ragnari skjálfta og rýni í Samdrætti
    Ragnar Stefánsson, eða Ragnar skjálfti, hefur lengi verið áberandi í íslensku þjóðlífi, allt frá því hann kom heim frá námi og hóf störf á Veðurstofu Íslands fyrir meira en 50 árum. Hann er einn helsti jarðskjálftafræðingur landsins og hefur verið leiðandi í uppbyggingu mælakerfa og rannsóknum sem miða að því að spá fyrir um jarðskjálfta og draga úr hættum af þeirra völdum. Ragnar hefur líka lengi verið áberandi baráttumaður sósíalískra gilda og fyrir andstöðu við hersetu Bandaríkjanna á Íslandi. Ragnar hlaut nýverið íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis, fyrir bókina Hvenær kemur sá stóri? - Bókin er yfir­lits­rit um jarð­skjálfta á Ís­landi, sett fram á aðgengilegan hátt, og er, samkvæmt umsögn dómnefndar, líkleg til að vekja athygli lesenda á vísindum, á sviði sem varðar almenning mikið. Ragnar skjálfti er gestur svipmyndar í Víðsjá dagsins.
    En áður en við fáum Ragnar til okkar hljóðstofu heyrum við leikhúsrýni frá Evu Halldóru Guðmundsdóttur. Hún lagði leið sína í Tjarnarbíó til að sjá leikverk Matt Bartlett, Samdrætti. Þýðngu leikverksins gerði Kristín Eiríksdóttir og leikstjórn er í höndum Þóru Karítasar Árnadóttur.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    53 min
  • Lítil bók um stóra hluti, Hringrás, Hvernig kemst ég í sprengjubyrgið
    Lítil bók um stóra hluti kallst nýútkomin bók eftir Þórunni Jörlu Valdimarsdóttur. Þar veltir Þórunn vöngum yfir hlutskipti mannanna hér á jörð, samskiptum kynjanna, ástinni, einmanaleikanum, jörð og eilífð og öllu þar á milli. Þórunn verður gestur okkar í dag.
    Dansverkið Hringrás eftir Þyri Huld Árnadóttur, er sýnt um þessar mundir í samstarfi við Íslenksa dansflokkinn í Borgarleikhúsinu. Eva Halldóra Guðmundsdóttir rýnir í verkið í þætti dagsins.
    Við höldum líka í Norræna húsið og skoðum sýninguna Hvernig ég komst í sprengjubyrgið en þar eiga 7 úkraínskir listamenn, reyndar eitt listamannatvíeyki, verk á öflugri sýningu þar sem verkin hafa öll orðið til á síðasta tæpa ári, eftir að innrás Rússa í Úkraínu hófst. Við heimsækjum norræna húsið og ræðum við úkraínska sýningarstjórann sem heitir Yulia Sapiga og er orðin ein af starfsmönnum safnsins.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir
    55 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,824 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners