Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Íslensku myndlistarverðlaunin 2023
    Víðsjá dagsins er tileinkuð þeim listamönnum og sýningum sem hlutu verðlaun á Íslensku myndlistarverðlaunum þann 16.mars síðastliðinn.
    Við grípum niður í viðtöl við Hrafnkel Sigurðsson sem er myndlistarmaður ársins, Ásgerði Birnu Björnsdóttur sem hlaut hvatningarverðlaunin, Ragnheiði Gestsdóttur sem átti eitt verkanna í samsýningu ársins, Hjólið V: Allt í góðu, og Ragnheiði Jónsdóttur sem hlaut heiðursverðlaun fyrir lífsstarf sitt í þágu íslenskrar myndlistar og menningar.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir
    55 min
  • Myndlist á Íslandi: ný myndlistarstefna og framtíðarsýn
    Íslensku myndlistarverðlaununum verða afhent í kvöld við hátíðlega athöfn í Iðnó, en þetta er í sjötta sinn sem verðlaunin eru veitt. Í dag stendur svo yfir ráðstefna í Þjóðmenningarhúsinu, þar sem staða myndlistar í íslensku samfélagi er reifuð. Að ráðstefnunni standa Menningar- og viðskiptaráðuneytið og Myndlistarmiðstöð. Af þessu tilefni verður Víðsjá dagsins með öðruvísi sniði, við fáum til okkar gesti sem taka til máls á ráðstefnunni og ræðum myndlistarmenningu og framtíð myndlistarstarfsemi á Íslandi. Gestir okkar verða Dorothee Kirch, Hlynur Hallsson, Ingibjörg Sigurjónsdóttir og Bjarki Bragason Og svo heyrum við einnig í Pari Stave, forstöðukonu Skaftfells. Pari flutti frá New York til Seyðisfjarðar árið 2022 en hún starfaði áður sem sýningarstjóri hjá Metropolitan safninu í New York.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Svipmynd af Jónmundi Grétarssyni, Millibilsmaður
    Jónmundur Grétarsson leikari ólst upp í Vesturbænum í Reykjavík og Garðabæ. Hann sló í gegn í söngleiknum Bugsy Malone sem settur var á svið í Loftkastalanum árið 1997 en ætlaði samt ekkert endilega að verða leikari. Þónokkrum árum síðar, eftir glæstan feril í fótbolta, fór Jónmundur til San Francisco að læra leiklist. Stuttu eftir heimkomu stofnaði hann ásamt félögum sínum leikhópinn Elefant, en hann samanstendur af leikurum sem eiga það sameiginlegt að vera Íslendingar af blönduðum uppruna. Elefant setti á svið leikverkið Smán eftir Ayad Akh­t­ar í Þjóðleikhúsinu 2017, og hópurinn stígur þar á svið á nýjan leik annað kvöld, þegar þau frumsýna Íslandsklukkuna í leikstjórn Þorleifs Arnars Arnarssonar. Jónmundur verður gestur okkar í svipmynd í dag.
    En við byrjum á bókmenntarýni, Millibilsmaður heitir heimildaskáldsaga Hermanns Stefánssonar sem gerist á fyrstu árum 20. Aldar. Þar eru jöfnum höndum tekin fyrir sjálfstæðismál og spíritsmi. Sölvi Halldórsson bókmenntarýnir Viðsjár segir okkur skoðun sína á verkinu
    55 min
  • Ljósmyndir Rúnars Gunnarssonar, Draumaþjófurinn, Smithsonian
    Rúnar Gunnarsson ljósmyndari er fæddur árið 1944. Hann fékk sína fyrstu myndavél árið 1957 og fór þá beinustu leið út að mynda og hefur verið að mynda síðan. Ljósmyndasýnin á verkum Rúnars opnaði dyr sínar í myndasal Þjóðminjasafns Íslands síðastliðinn laugardag og kallast sýningin Ekki augnablikið heldur eilífðin
    Rúnar segir drifkraftinn á bak við ævistarfið vera þörfina fyrir að fanga andblæ tímans, eilífðina og mögulega einhvern sannleika, og að á sama tíma hafi hann reynt að forðast fegurðina eins og heitan eldinn. Við heyrum meira af því þegar við skoðum ljósmyndirnar með Rúnari í þætti dagsins.
    Nýtt íslenskt leikhúsverk var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu þann 5.mars síðastliðinn, Draumaþjófurinn. Þetta er fjölskyldusöngleikur eftir Björk Jakobsdóttur sem byggir á bók Gunnars Helgasonar, en Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson semur tónlistina. Eva Halldóra Guðmundsdóttir rýnir í verkið.
    En við hefjum þáttinn á fréttum frá Bandaríkjunum, á stækkunar hugmyndum um eina mestu menningarstofnun þess stóra lands, Smithsonian safnsins.
    55 min
  • Prinsessuleikarnir, Kerfi í Berg contemporary, Roni Horn
    Í Berg Contemporary við Klapparstíg var opnuð um liðna helgi sýningin Kerfi þar sem ný verk eftir Heklu Dögg Jónsdóttur myndlistarkonu eru til sýnis. Verkin á sýningunni eru þrenns konar: þarna er vídeóverk þar sem þrír litir blandast saman á vatnsyfirborði, í öðru verki rúlla hvítir og svartir textar yfir vegginn á plastrúllum, og svo eru þarna stór pappírs verk, sem ná frá gólfi og upp í loft. Meira um það þegar við göngum um sýninguna með Heklu Dögg í þætti dagsins.
    Og svo ætlum við að velta fyrir okkur hugmyndinni um prinsessuna. Goðsögnin um hina hreinu og duglegu prinsessu, prúðu og iðnu stúlkuna, sem Grimmsbræður festu á blað, og sem Disney verkmsiðjan festi svo enn betur í sessi í samtíma okkar, lifir enn góðu lífi, en afhverju? Austurríska nóbelskáldið Elfriede Jelinek tekst á við þessar spurningar í Prinsessuleikunum, verki sem Borgarleikhúsið frumsýnir um næstu helgi í leikstjórn Unu Þorleifsdóttur. Una verður gestur okkar í dag.
    Á fimmtudaginn síðasta var samþykkt á Alþingi að veita 21 ein­stak­lingi rík­is­borg­ara­rétt. Athygli vakti að meðal þeirra er banda­ríska lista­kon­an Roni Horn sem sannarlega má setja í flokk svokallaðra Íslands­vina eft­ir ára­löng tengsl henn­ar við land og þjóð. Af þessu tilefni ætlum við að hverfa aftur til ársins 2007,
    og rifja upp viðtal við listakonuna, sem ræddi þá meðal annars um áhrif Íslands á list hennar, efnahagsmálin sem þá voru á blússandi siglingu og náttúruvernd svo eitthvað sé nefnt.
    53 min
  • María Mey, Velkomin til Téténíu
    María Mey sem hin hreina mær hefur verið einn helsti innblástur listamanna af öllu tagi frá því að hún kom fram á sjónarsviðið. Hin hreina og óflekkaða mær er þó ekki svo óflekkuð í huga allra og í seinni tíð hafa femínískir guðfræðingar varpað ljósi á allskyns annarskonar útgáfur af Maríu, sem í sumum tilfellum er nærbuxnalaus og dónaleg. Sigríður Guðmarsdóttir guðfræðingur er ein þeirra sem tekur til máls á Hugvísindaþingi Háskóla Íslands á morgun, þar mun hún fjalla um birtingarmyndir Maríu í nýrri sálmabók Þjóðkirkjunnar, með vísan í fræðimenn og myndlisarverk Kristínar Gunnlaugsdóttur. Við ræðum við Sigríði í þætti dagsins.
    Heimildarmynd um aðstæður hinsegin fólks í Téténíu verður sýnd í Bíó Paradís á sunnudaginn. Lucy Shtein, meðlimur Pussy Riot, segir hinsegin fólk ofsótt á svæðinu og að mikilvægt sé að muna að aðstæður margra séu bágar í Rússlandi. Hún verður gestur okkar í þætti dagsins.
    55 min
  • Svipmynd af Ingibjörgu Jóhannsdóttur, ritstjórn og ritskoðun
    Ingibjörg Jóhannsdóttir hefur verið safnstjóri Listasafns Íslands í rétt rúma viku. Hún var skipuð í starfið í desember af menntamálaráðherra eftir að hafa verið valin úr hópi sex umsækjenda, og tók við starfinu þann fyrsta mars síðastliðinn. Ingibjörg var skólastjóri Myndlistarskólans í Reykjavík og Landskotsskóla samanlagt hátt í þrjá áratugi. Áður hafði hún starfað um þriggja ára skeið við Listasafn Íslands, verið stundakennari við Listaháskóla Íslands og fleiri skóla. Hún stundaði nám við School af Visual Arts og Pratt Institute í New York en þar áður hafði hún lokið námi við grafíkdeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Ingibjörg verður gestur okkar í svipmynd dagsins. Hver er konan, hvaðan kemur hún, og hvert er hún að fara?
    En við hefjum þáttinn á pistli frá einum af bókmenntarýnum okkar, Grétu Sigríði Einarsdóttur. Gréta Sigríður ætlar ekki að fjalla um nýútkomna bók að þessu sinni, heldur ætlar hún að velta fyrir sér muninum á ritstjórn og ritskoðun. Eru Laxness og Dahl of flóknir og of gamaldags fyrir unga lesendur?
    55 min
  • Smámunir sem þessir, Þrenna frá Ars Longa
    Smámunir sem þessir eftir írska rithöfundinn Claire Keegan kom út í íslenskri þýðingu Helgu Soffíu Einarsdóttur í síðustu viku. Þetta er fjórða bók höfundarins sem er margverðlaunuð fyrir verk sín. Bókin gerist á Írlandi níunda áratugarins og segir frá kolakaupmanni í smábæ nokkrum þar sem lífið snýst um fjölskylduna, vinnuna, kirkjuna og kannski barinn. Söguhetjan lifir frekar reglubundnu lífi þar til að hann fær óvænt innsýn í það sem er raunverulega að gerast á bak við luktar dyr klaustursins. Sagan snertir á myrkum blett í sögu Írlands, sögu Magdalenu þvottahúsanna og þeirra 30.000 kvenna sem voru þar læstar inni. Meira um það í þætti dagsins.
    Svo sláum við á þráðinn og heyrum í Einari Guðmundssyni rithöfundi sem hefur stundað ritstörf sín í um hálfa öld, mestan part út í Munchen þar sem hann hefur verið búsettur áratugum saman. Ný bók hans er komin út, í þrjúhundruð tölusettum eintökum sem bókaútgáfan Ars Longa gefur út en hún á sér heimilsfesti austur á Djúpavogi, og starfar í nánu samstarfi við Ars Longa samtímalistasafnið. Það er tilraunarkenndur andi yfir þessari bók sem heitir Þrenna en inniheldur eins og nafnið gefur til kynna i raun þrjárbækur, Ár og sprænur - hulda ráðgátan heitir ein, ranimosk heitir önnur og sú þriðja Litlu sögurnar í hálfa samhenginu. Við hringum til Munchen í þættinum í dag og ræðum við Einar Guðmundsson.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir
    55 min
  • Ingunn FJóla Ingþórsdóttir, Eyþór Gunnarsson um Wayne Shorter, Sólrún
    Endurvarp kallast sýning Ingunnar Fjólu Ingþórsdóttur í Listvali á Granda. Á sýningunni kannar Ingunn Fjóla mörk málverks og vefnaðar, þar sem verkin verða hugleiðing og tilraun til að fanga óstöðugt ástand lita. Og jafnvel óstöðugt ástand yfirleitt, því Ingunn Fjóla segist að einhverju leyti vera að leita uppi fegurð í heimi sem mætti stundum vera stöðugri, og fallegri. Meira um það í þætti dagsins. Einnig heyrum við rýni Sölva Halldórssonar í skáldsögu Sigurlínar Bjarneyjar Gísladóttur, Sólrúnu. Og við kynnum okkur tónlistarmanninn Wayne Shorter með Eyþóri Gunnarssyni.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir
    55 min
  • Skilaboð að handan, Kammerkór Norðurlands, súrrealistar
    Mikilvæg skilaboð að handan eru hvatinn að baki nýrri sýningu GJörningaklúbbsins sem opnar dyr sínar í Gallerí Porti um helgina. Þær Eirún Sigurðardóttir og Jóní Jónsdóttir, sem hafa starfað saman í rúma tvo áratugi að listinni, hafa í auknum mæli nýtt sér sjáendur við upphaf sköpunarferlis, aðferð sem þær kalla miðil-miðil.
    Sýningin í Gallerí Porti mun hverfast um miðilsfund sem átti sér stað í húsi við Bergstaðarstræti 2019, í húsi Ásgríms Jónssonar listmálara. Á fundinum náðist samband við Ásgrím sem vildi koma mikilvægum skilabopðum á framfæri. Þær Eirún og Jóní hafa hingað til ekki opinberað miðilsfundina sjálfa en í þessu tilfelli vilja þær gefa fólki kost á að komast í þessa frumheimild. Við heyrum upptökur af miðilsfundinum og ræðum við listakonurnar í þætti dagsins.
    Kammerkór Norðurlands er á faraldsfæti þessa dagana, kórinn hefur starfað í yfir 20 ár og hefur frá stofnun haft að markmiði að flytja nýja íslenska kórtónlist, samhliða ýmsum öðrum verkefnnum og gefið út þrjá hljómdiska, síðast árið 2020, en þar er að finna ljóð Davíðs Stefánssonar við ný og eldri íslensk lög. Nú beinir kórinn sjónum sínum til Bandaríkjanna og flytur nokkur af nýrri kórverkum höfuðtónskálda Bandaríkjanna í bland við dægurlög í kórútsetningum. Meðlimir kórsins eru flestir tónlistarmenntaðir og/eða atvinnufólk í tónlist sem koma víða að af Norðurlandi, búsettir allt frá Kópaskeri að Hrútafirði og kórstjórinn, Við ræðum við Guðmund Óla Gunnarsson í þætti dagsins.
    Og að gefnu tilefni rifjum við upp umfjöllun um konur sem tengdust hreyfingu súrrealista á fyrri hluta síðustu aldar.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir
    55 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,824 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners