Vikulokin

Vikulokin

By RÚV
Download on the App Store
  • Favorites

    21

    Followers

  • Typical duration

    57 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Vikulokin episodes

  • Víðir, Anna Sigrún, Willum
    Enn ein bylgja kórórónaveirufaraldursins ríður nú yfir landið svo enn þarf að grípa til hertra sóttvarnaaðgerða. Landspítalinn þarf að draga úr þjónustu og grípa til aðgerða til þess að geta sinnt bráðveikum COVID-sjúklingum og álag á starfsfólk spítalans eykst enn og fjöldi heilbrigðisstarfsfólks gefst upp og hættir. Fjárlög eru ekki enn komin fram þrátt fyrir að einungis sé rúmur mánuður þar til þau þarf að afgreiða frá Alþingi lögum samkvæmt og forstjórar ríkisstofnanna segja stöðuna valda óvissu.
    Gestir þáttarins eru:
    Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra
    Willum Þór Þórsson, þingmaður Framsóknarflokksins og starfandi forseti Alþingis
    Anna Sigrún Baldursdóttir, framkvæmdastjóri skrifstofu forstjóra Landspítala
    Umsjón: Sigríður Dögg Auðunsdóttir
    55 min
  • Einar, Hanna Birna og Magnús Karl
    Gestir Vikulokanna voru Einar Bárðarson, framkvæmdastjóri Votlendissjóðs, Hanna Birna Kristjánsdóttir, ráðgjafi hjá UN Women, og Magnús Karl Magnússon, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands. Rætt var um nýhertar sóttvarnaraðgerðir í ljósi metfjölda smita og samfélagsleg áhrif þeirra, stöðu Landspítalans og viðvarandi manneklu, loftslagsráðstefnuna í Glasgow, auglýsingu Íslandsstofu þar sem hent var gaman að Mark Zuckerberg og fleira.
    Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson
    Tæknimaður: Jón Karl Helgason
    55 min
  • Sonja Ýr, Henry Alexander, Þóra
    Málefni þáttarins var umræðan um kynferðisbrotamenn og hvenær og hvort samfélagið sé tilbúið til þess að gefa gerendum í kynferðisofbeldismálum leyfi til þess að taka þátt í samfélaginu eftir brot og á hvaða forsendum það ætti að vera. Áhrif umræðunnar á þolendur kynferðisbrota og hvernig hægt sé að tryggja að þolendur stýri því hvernig umræðan fer fram.
    Gestir Vikulokanna voru:
    Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB
    Þóra Tómasdóttir, upplýsingafulltrúi Advania
    Henry Alexander Henrysson siðfræðingur, aðjúnkt við HÍ.
    Umsjón: Sigríður Dögg Auðunsdóttir
    55 min
  • Pawel, Katrín og Kolbrún
    Gestir Vikulokanna voru borgarfulltrúarnir Pawel Bartoszek, Viðreisn, Katrín Atladóttir, Sjálfstæðisflokki, og Kolbrún Baldursdóttir, Flokki fólksins. Farið var vítt og breitt yfir borgarmálin, svo sem skipulagsmál, leikskóla og fleira.
    Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson
    55 min
  • Arndís, Ágúst, Jódís og Kristrún
    Gestir Vikulokanna eru allir nýir þingmenn; Arndís Anna K. Gunnarsdóttir, Pírötu, Ágúst Bjarni Garðarsson, Framsóknarflokki, Jódís Skúladóttir, Vinstri grænum, og Kristrún Frostadóttir, Samfylkingu. Rætt var um sölu Símans á Mílu til erlendra aðila og álitamál því tengd, stöðuna í norðausturkjördæmi og rannsókn kjörbréfanefndar á mistökum við talningu, stjórnarmyndunarviðræður og fleira.
    Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson
    55 min
  • Ragnheiður, Tinna Laufey og Eggert
    Rætt var um heilbrigðismál, málaflokk sem kjósendur töldu hvað mikilvægastan fyrir nýafstaðnar alþingiskosningar og hvað mest var áberandi í kosningabaráttunni. Umræða um ástandið á bráðamóttöku margoft blossað upp undanfarin ár og læknar og hjúkrunarfólk lýst yfir neyðarástandi án þess að brugðist sé við með viðunandi hætti.
    Gestir þáttarins voru:
    Ragnheiður Ríkharðsdóttir, formaður Alzheimer's samtakanna
    Tinna Laufey Ásgeirsdóttir prófessor í heilbrigðishagfræði
    Eggert Eyjólfsson bráðalæknir Landspítala
    Umsjón: Sigríður Dögg Auðunsdóttir
    55 min
  • Bryndís, Guðbrandur og Sigurður Örn
    Rætt var um stöðuna sem upp er komin eftir endurtalningu atkvæða í norðvesturkjördæmi sem leiddi til þess að fjórir jöfnunarþingmenn misstu sæti sitt á Alþingi og fjórir nýir komu í staðinn.
    Gestir voru:
    Guðbrandur Einarsson, nýr þingmaður Viðreisnar sem kom inn sem jöfnunarmaður eftir endurtalningu í Norðvesturkjördæmi
    Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og annar varaforseti Alþingis
    Sigurður Örn Hilmarsson, formaður Lögmannafélags Íslands
    Umsjón: Sigríður Dögg Auðunsdóttir
    55 min
  • Elfa Ýr, Eva og Sindri Freyr
    Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar, Eva H. Önnudóttir prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og Sindri Freyr Ásgeirsson forseti Politicu félags stjórnmálafræðinema við HÍ og starfsmaður kjörstjórnar í Reykjavík ræddu á kjördegi ýmislegt sem tengist stjórnmálum,; kosningabaráttu, miðlun, kjörsókn og utankjörfundaratkvæðagreiðslur.
    Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir
    Tæknimaður: Úlfhildur Eysteinsdóttir
    55 min

About Vikulokin

From the publisher's feed

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.

Best of Vikulokin

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Vikulokin

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Spegillinn by RÚV

Spegillinn

6 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Grjótkastið by Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

16 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners