Vikulokin

Vikulokin

By RÚV
Download on the App Store
  • Favorites

    21

    Followers

  • Typical duration

    57 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Vikulokin episodes

  • Hildur, Þóra og Óttar
    Gestir þáttarins voru Óttar Guðmundsson geðlæknir, Hildur Sverrisdóttir varaþingmaður og aðstoðarmaður ráðherra og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, upplýsinga- og samskiptastjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Fjallað var um fréttir um illa meðferð á íbúum vistheimilisins Arnarholts á síðustu öld, sóttvarnaraðgerðir, bóluefni sem er hugsanlegt að komist í almenna dreifingu snemma á næsta ári, og úttekt um hvað fór úrskeiðis þegar hópsmit kom upp á Landakoti.
    Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson
    Tæknimaður: Mark Eldred
    55 min
  • Guðmundur, Kristrún og Borgar Þór
    Gestir þáttarins voru Guðmundur Hálfdanarson, prófessor í sagnfræði, Borgar Þór Einarsson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra, og Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur. Rætt var um forsetakosningarnar í Bandaríkjunum þar sem Joe Biden virðist á barmi þess að tryggja sér sigur, áhrif kjörs hans innanlands og utan, arfleifð Donald Trump og fleira.
    55 min
  • Halla Hrund, Ólafur Örn og Sandra
    Halla Hrund Logadóttir, stjórnmálafræðingur sem stýrir miðstöð Norðurslóða hjá Harvard-háskóla í Bandaríkjunum, Ólafur Örn Ólafsson, veitingamaður og Sandra B. Franks formaður Sjúkraliðafélags Íslands ræddu um harðari aðgerðir og takmarkanir í kórónuveirufaraldrinum, neyðarstig á Landspítalanum, störf bakvarða og hjúkrun á tímum COVID, áhrif á veitingarekstur og svo forsetakosningar í Bandaríkjunum sem verða þriðjudag.
    Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir
    Tæknimaður: Ragnar G. Gunnarsson
    55 min
  • Vilhjálmur, Þorbjörg Sigríður, Þórhildur Sunna
    Gestir þáttarins voru þingmennirnir Vilhjálmur Árnason, Sjálfstæðisflokki, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, Viðreisn, og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Pírötum. Rætt var um jarðskjálfta á Reykjanesskaga sem skók höfuðborgarsvæðið, frystiskipið Júlíus Geirmundsson sem var haldið á veiðum þrátt fyrir veikindi áhafnarinnar, umdeilda merkjanotkun innan lögreglunnar, og sóttvarnaraðgerðir.
    Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson
    Tæknimaður: Mark Eldred
    55 min
  • Héðinn, Þórhildur og Jón
    Gestir Vikulokanna eru Héðinn Unnsteinsson, formaður Geðhjálpar, Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri og Jón Þórisson ritstjóri Fréttablaðsins. Þau ræða nýtt átak Geðhjálpar í geðheilbrigðismálum, sóttvarnaraðgerðir, undirskriftasöfnun fyrir nýrri stjórnarskrá, breytingum á nafnalögum og fleira.
    Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson
    Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
    55 min
  • Baldur, Líney og Unnsteinn
    Hertar sóttvarnir, viðbrögð íþróttahreyfingarinnar, íslensk og bandarísk stjórnmála sem og framtíð landbúnaðar í landinu voru meðal þess sem bara á góma. Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðiprófessor, Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Íþróttasambands Íslands og Unnsteinn Snorri Snorrason, framkvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda voru gestir í vikulokin.
    Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir
    Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson
    55 min
  • Inga, Ágúst Ólafur, Haraldur
    Gestir Vikulokanna eru þingmennirnir Haraldur Benediktsson Sjálfstæðisflokki, Ingu Sælandi, Flokki fólksins, og Ágúst Ólafur Ágústsson Samfylkingu, sem öll sitja í fjárlaganefnd. Til umræðu er fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar, sem kynnt var í vikunni, þingmálaskrá vetursins, sóttvarnaraðgerðir og fleira.
    55 min
  • Halla, Benedikt og Gunnar
    Gestir Vikulokanna voru Halla Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri ASÍ, Benedikt Jóhannesson, stærðfræðingur og fyrrverandi formaður Viðreisnar og norður á Akureyri er Gunnar Gíslason, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Rætt var um nýja samstjórn í bæjarstjórn Akureyrar, lífskjarasamninga í uppnámi, ákvörðun Lífeyrissjóðs Verzlunarmanna að taka ekki þátt í hlutafjárútboði Icelandair, Khedr-fjölskylduna frá Egyptalandi sem fékk landvistarleyfi af mannúðarástæðum, umfjöllun Kveiks um hugsanlegt brot Eimskipafélagsins, landsþing Viðreisnar sem fram fór á netinu og kosningaveturinn framundan.
    55 min
  • Anna Sigrún, Konráð og Kristín
    Sóttvarnaaðgerðir í ljósi mikils fjölda smita sem greinst hefur í vikunni, framtíðarsýn stjórnvalda og seigla almennings, hlutafjárútboð Icelandair, málefni innflytjenda og myndbirting frelsarans voru meðal þess sem rætt var um í Vikulokunum. Gestir: Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður forstjóra Landspítalans, Konráð S. Guðjónsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands og Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins.
    Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir
    Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson
    55 min
  • Erla Björg, Grétar Halldór og Kristján Þór
    Gestir Vikulokanna voru Erla Björg Gunnarsdóttir, fréttastjóri Stöðvar 2 og Bylgjunna, Grétar Halldór Gunnarsson, prestur í Grafarvogi, og Kristján Þór Magnússon bæjarstjóri á Húsavík, sem verður í hljóðveri á Akureyri. Fjallað var um viðbrögð við fréttum af því þegar enskir landsliðsmenn í fótbolta brutu sóttvarnarreglur með því að bjóða stúlkum upp á hótel til sín, sláandi viðtal í Kastljósi við stúlku sem varð fyrir grófu ofbeldi af hálfu kærasta síns, umdeilda auglýsingu fyrir sunnudagaskóla sem sýndi Jesús með brjóst, mál egypskrar fjölskyldu sem á að vísa úr landi eftir tveggja ára dvöl, niðurgreiðslu á flugfargjöldum fyrir íbúa utan höfuðborgarsvæðisins og lýðheilsu og andlega líðan í Covid-faraldrinum.
    Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson
    Tæknimaður: Mark Eldred
    55 min

About Vikulokin

From the publisher's feed

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.

Best of Vikulokin

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Vikulokin

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Spegillinn by RÚV

Spegillinn

6 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Grjótkastið by Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

16 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners