Lestin

Lestin

Download on the App Store

Lestin episodes

  • Í beinni frá Iceland Airwaves
    Í dag fimmtudaginn 3. nóvember hefst tónlistarhátíðin Iceland Airwaves sem snýr nú aftur eftir tveggja ára covid-hlé. Sex tónleikastaðir og eitthvað í kringum 80 hljómsveitir koma fram, auk fjölda hliðarviðburða - það sem er kallað off-venue.
    Við sendum þáttinn út beint frá Airwaves-miðstöðinni í Kolaportinu. Við heyrum meðal annars í tónlistarkonunum Sóleyju Stefánsdóttur og Kolbrúnu Óskarsdóttur, sem kallar sig Kusk. Við ræðum við Eldar Ástráðsson og Þorbjörgu Roach Gunnarsdóttur fastagesti, og tökum púlsinn á Sindra Ástmarssyni, bókunar- og dagskrástjóra hátíðarinnar.
    55 min
  • R.I.P Takeoff, Snorri í vinsælli Netflix-mynd, sigur-Dýrið og Low Roar
    Í þætti dagsins munum fjalla um rapparann Takeoff úr hljómsveitinni Migos, en hann lést í skotárás á dögunum - aðeins 28 ára gamall. Logi Pedro ræðir við Lóu um áhrif Migos á rapptónlist samtímans.
    Við ræðum við Snorra Hallgrímsson sem semur tónlistina í einni vinsælustu myndinni á Netflix þessa dagana, spænsku hrollvekjunni Jaula.
    Svo heyrum við um sigurför Dýrsins til Helsinki og minnumst Ryan Karazija forsprakka hljómsveitarinnar Low Roar sem lést á dögunum.
    55 min
  • Syngur um blómgandi getnaðarlim, venesúelsk menning, listin að kvarta
    Salka Valsdóttir er meðlimur tónlistartvíeykisins Cyber, stofnmeðlimur RVK DTR og tónskáld í leikhúsi. Nýlega fór hún að gefa út tónlist undir listamannsnafninu Neonme. Við hlustum á nýju lögin hennar og heyrum söguna á bak við tónlistina.
    Patrekur Björgvinsson hefur verið með pistla í Lestinni undanfarnar vikur þar sem hann veltir fyrir sér fyrirbærum í alþýðumenningu Íslendinga. Í þætti dagsins veltir hann fyrir sér listinni að kvarta.
    Við lítum suður á bóginn og heyrum hvað er að frétta í dægurmenningunni í Venesúela. Kristján Guðjónsson ræddi við Helen Cova, venesúelskan rithöfund sem búsett er hér á landi. Viðtalið var fyrst flutt í Lestinni þann 17. maí fyrr á þessu ári.
    56 min
  • Drepleiðinleg Bjarkar-plata, verðlaunaútvarp, heimildamyndin Band
    Heimildamyndin Band verður frumsýnd síðar í vikunni. Myndin er meiksaga óþekktrar íslenskrar hljómsveitar. The Post Performance Blues Band sest um borð í Lestina.
    *TW* Við skoðum nokkra útvarpsþætti og seríur sem hlutu verðlaun á Prix Europa, evrópsku ljósvakaverðlaununum sem fóru fram í síðustu viku: belgískt verk um umskurð kvenna, írskt verk um dauðann, sænsk sería um svindlara og þýsk sería um fyrirgefningu. Við vörum við innihaldi þessa innslags þar sem brot úr þáttunum heyrast.
    Davíð Roach Gunnarsson rýnir í nýjustu plötu Bjarkar, Fossora, sem kom út á haustmánuðum. Davíð beið spenntur eftir plötunni en varð fyrir vonbrigðum - vægast sagt.
    57 min
  • Pönkarar pönkast á Fésbókinni, kvikmyndin Bros, uppruni Pítunnar
    Í lok vikunnar verður rómantíska gamanmyndin Bros, sem við gætum kannski þýtt sem ?fellar.? frumsýnd. Myndin þykir nýstárleg vegna þess að hinar ástföngnu aðalpersónur eru ekki karl og kona, gagnkynhneigt par, heldur hommar. Þetta er í fyrsta skipti sem slík mynd er framleidd fyrir meginstrauminn af stóru Hollywood-kvikmyndafyrirtæki. Myndin hefur fengið nokkuð góða dóma en aðsóknin hefur hins vegar frekar dræm í Bandaríkjunum. Felix Bergsson var hins vegar einn af þeim sem mættu á myndina.
    Brauðhleifur beint frá miðjarðarhafi. Þannig var maturinn sem borinn var á borð meðal annars auglýstur þegar veitingastaðurinn Pítan, var opnaður á vetrarmánuðum 1982. Steinunn Sigþrúðar-Jónsdóttir rekur sögu Pítunnar, sem er í seinni tíð kennd við Skipholt. Innslagið var fyrst flutt í Lestinni 16. maí fyrr á árinu.
    Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir, pistlahöfundur, veltir fyrir sér hugmyndafræði pönkkynslóðarinnar, sem virðast vera einu eftirlifandi virku notendur samfélagsmiðilsins Facebook.
    55 min
  • Landnámsmenn árið 2022, endalok sápuóperunnar, bíórýni
    LungA skólinn hefur verið starfræktur á Seyðisfirði í tíu ár. Lýðskólanum fylgir líf og fjör og nemar við skólann kærkomin viðbót við bæjarlífið, enda fá ungmenni búsett þar yfir veturinn. Signý Jónsdóttir er í hópi fólks sem hefur unnið að þróun nýrrar námsleiðar við skólann sem verður prófuð í fyrsta sinn í Janúar. Þar munu nemendur fá kennslu í því að kynnast landinu, eins og þeir væru landnámsmenn á Seyðisfirði árið 2022.
    Guðrún Elsa Bragadóttir kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar rýnir í tvær kvikmyndir, Triangle of sadness, þríhyrning sorgar, í leikstjórn Ruben Östlund og nýja íslenska kvikmynd, Sumarljós og svo kemur nóttin, mynd í leikstjórn Elfars Aðalsteinssonar.
    Guðni Tómasson menningarsagnfræðingur skoðar endalok sápuóperunnar, sem sumir segja yfirvofandi.
    Við byrjum þáttinn á því að hringja austur á Egilsstaði og heyra um residensíu pólskra tónlistamanna, Ragnhildur Ásvalsdóttir, Sláturhússtjóri, segir frá.
    55 min
  • Sturla Atlas og Ísleifur, Vintage Caravan, tíminn hleypur frá okkur
    Sturla Atlas er sama um rapp. Tónlistarmennirnir Ísleifur Eldur Illugason og Sigurbjartur Sturla Atlason gáfu út fjögurra laga stuttskífuna Dag eftir dag þann 14. október. Við ræðum við þá um útþvæld umfjöllunarefni rapptexta, stöðu rappsins og pródúsentatögg.
    Assa Borg Þórðardóttir er í fæðingarorlofi og til að drepa tíman milli bleyjuskipta og göngutúra skoðar hún gamlar myndir. Hún veltir fyrir sér tímanum og aðgerðarleysi í loftslagsmálum.
    Rokkhjómsveitin Vintage Caravan nýtur stöðugt meiri vinsælda víða um heim. Hún hefur verið á stöðugu tónleikaferðalagi undanfarinn mánuð og spilað á tónleikum í nýrri borg á nánast hverju einasta kvöldi. Kristján hringdi í Óskar Loga Ágústsson söngvara sveitarinnar í lok síðustu viku og forvitnaðist hvernig tónleikaferðina.
    55 min
  • Ný plata Taylor Swift, Líf og dauði, makaval ávaxtafluga
    Ný plata Taylor Swift kom út síðastliðinn föstudag. Þetta er platan Midnights og útgáfunni fylgdi önnur plata með sjö lögum til viðbótar. Ásdís Sól Ágústsdóttir er svokallaður Swiftie en það er nafn yfir þá sem teljast dyggir aðdáendur tónlistarkonunnar. Ásdís Sól segir frá Midnights.
    Í næstu viku verður allrasálnamessa haldin hátíðleg víða um heim. Í Mexíkó nefnist hátíðin dagur hinna dauða og minnast landsmenn þá ástvina sem fallnir eru frá, reisa þeim altari, segja sögur og rifja upp líf þeirra og uppáhaldsmat og drykki. Söngkonan Svanlaug Jóhannsdóttir hefur mikið velt fyrir sér því hvernig við minnumst þeirra látnu og í matar og tónlistarveislunni Líf og dauði í Gamlabíói seinna í vikunni mun hún í anda mexíkóska hefða, segja sögur og syngja suðurameríska tónlist um líf og dauða.
    Fróði Jónsson dýraatferlisfræðingur flytur pistil um menningarsamfélög dýra, að þessu sinni skoðar hann makaval ávaxtafluga.
    55 min
  • Bullsíður, Mother Country Radicals, spilunarlistagerðarmenn
    Hlaðvarpsþættirnir Mother Country Radicals fjalla um meðlimi hópsins The Weather Underground. Veðurmennirnir voru róttækir aðgerðarsinnar í baráttu gegn Víetnamstríðinu, heimsvaldastefnu Bandaríkjanna og kynþáttaofbeldi svo eitthvað sé nefnt. Við höfum verið að hlusta á þættina og það hefur doktorsneminn í sagnfræði, Pontus Järvstad, líka verið að gera. Pontus hefur sérhæft sig í andfasisma og vinstrihreyfingum.
    Gunnar Jónsson flytur pistil um ástandið í tónlistarbransanum, streymisveitur og spilunarlistagerðamenn virðast ráða örlögum listamanna.
    Eftir að hafa rekist stöðugt á bullsíður með óskiljanlegum texta sem virtist skrifaður af einhverri gallaðri gervigreind leituðum við svara hjá sérfræðing í markaðsmálum, algrímum og Google, Tryggva Frey Elínarsyni.
    55 min
  • The Bear kokkabrjálæðið (CHEF!), House of the Dragon, Í mynd gyðjunnar
    Sjónvarpsþættirnir The Bear, sýndir á Disney+ hafa slegið í gegn nýlega og vakið mikið umtal og þykja sýna raunsanna mynd af starfi kokka og rekstri veitingastaða. Þættirnir fjalla um ungan mann, verðlaunakokkinn Carmy, sem erfir samlokustað í Chicago sem hefur verið í eigu fjölskyldu hans í áratugi. Meðan hann vinnur úr bróðurmissi reynir hann að greiða úr rekstrinum, borga skuldir og koma skipulagi á starfsemi eldhússins. Við ræðum við kokk sem hefur horft á þættina, Tómas Aron Jóhannsson, sem er vanur því að starfa í allskonar eldhúsum.
    Salvör Bergmann fjallar um House of the dragon, nýja þætti úr sagnaheimi Game of thrones. Hún segir að þættirnir séu ferskir en einnig kunnuglegir og ættu þannig að gleðja hvern þann sem notið hefur söguheimsins frá upphafi.
    Við veltum fyrir okkur hinni miklu fornsögulegu Gyðju og hvernig hún birtist í ljóðlist með Berglindi Gunnarsdóttur.
    Tónlist frá Van Morrison og Little Simz.
    55 min

About Lestin

From the publisher's feed

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

More shows like Lestin

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

214 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

67 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

16 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners