Lestin

Lestin

Download on the App Store

Lestin episodes

  • Leynilögga, Titane, vígsluathafnir íþróttaliða, Björk (aftur)
    Hjá mörgum íþróttafélögum tíðkast inntökuvígslur af einhverju tagi. Yfirleitt er nýliði þá látinn gera eitthvað sem honum er erfitt eða er niðurlægjandi. Í samfélagsumræðunni hefur áherslan einna helst verið á slíkar vígsluathafnir hjá karlmönnum en Ingólfur Vilhjálmur Gíslason - prófessor í félagsfræði við háskóla Íslands, hefur verið að rannsaka busanir kvennaliða.
    Tónleikaröðin Björk Orkestral fer fram þessa dagana í Hörpu en þar flytur Björk Guðmundsdóttir berstrípaðar útgáfur af lögum sínum. Í dag flytjum við okkur seinni hluta viðtals okkar við Björk, þar sem við ræddum meðal annars samstarf, útsetningar, metoo og birtingarmyndir kvenna í tónlistarbransanum.
    Gunnar Ragnarsson kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar tekur fyrir tvær myndir í dag. Annars vegar sigurvegara kvikmyndahátíðarinnar í Cannes, Titane eftir Juliu Ducournau og hinsvegar Leynilöggu, sem átti á dögunum stærstu frumsýningarviku Íslandssögunnar. Myndin hefur hlotið góða dóma erlendis, meðal annars fyrir afbökun á heterónormatívum hasarmyndarstílnum, en Gunnari þykja ástarsenurnar fremur dauflegar.
    55 min
  • DAO, ást og húmor, dansað um ekkert
    Við förum niður í Tjarnarbíó og kynnum okkur Neind Thing - dansverk eftir Ingu Huld Hákonardóttur, framið af 3 sviðslistakonum og einum trommara og leitast við að umbreyta ástandi óreiðu og ömurleika í rými til að tengjast, dreyma, íhuga, dansa og leika. Leikurinn er: Neitið og þér munið finna.
    Í hverju felst fyrirbærið ást? Kristín Anna Hermannsdóttir er ekki viss, en veit það fyrir víst að ástin hlýtur að fela í sér einhvers konar grín. Í dag ræðir hún um ljóð eftir brasilíska ljóðskáldið Oswald de Andrade, sem er í einfaldari kantinum. Það heitir Amor, og inniheldur bara eitt orð, humor.
    Við dýfum svo tánni ofan í crypto-samfélagið og kynnum okkur fyrirbærið DAO, nýtt fyrirbæri sem nýtur aukinna vinsælda í sniðmengi framúrstefnulistafólks, tölvunörda og áhættufjárfesta.
    55 min
  • Ástin á Kaffi Vest, slysaskot í Hollywood, vínylsöfnun Hermigervils
    Um lítið annað hefur verið rætt á kvikmyndamiðlum um helgina en slysaskotið í Hollywood. Á fimmtudag lést kvikmyndatökukonan Halyna Hutchins auk þess sem leikstjórinn Joel Souza slasaðist þegar skot hljóp úr byssu leikarans Alec Baldwin við tökur á vestranum Rust. Öryggisaðstæður á kvikmyndatökustað virðast hafa verið óviðunandi, tökuliðið hafði gengið út og slysið því engin tilviljun.Við hringjum til London og spjöllum við bardagalekarann Hallvarð Jes Gíslason um öryggi í kvikmyndabransanum.
    Tónlistarmaðurinn Sveinbjörn Thorarensen eða Hermigervill hefur safnað vínylplötum frá unga aldri. Gamalt rykfallið íslenskt rokk, fönk og diskó, svo ekki sé talað um öll gömlu trommusólóin. Tónlistin á þessum gömlu plötum hafa svo verið byggingarefni í tónlist Sveinbjörns. Við kíkjum í heimsókn til Hermigervils, sem vinnur nú að yfirgripsmiklu verkefni sem snýr að endurútgáfu á gömlum og oft á tíðum gleymdum gullmolum.
    Og við hugum að ást og ólíkum lestri á Facebook færslu í hverfishóp Vesturbæjar, um eitt augnarráð, örstutt samskipti, sem toga í rómantískt minni okkar en kannski einnig í nýrra minni, um óumbeðna athygli.
    55 min
  • Blökkubeita, hálf-félagsleg sambönd og Björk
    Björk Guðmundsdóttir sest um borð í Lestina í dag.Tónleikaröðin Björk Orkestral fer fram þessa dagana í Hörpu en þar flytur hún berstrípaðar útgáfur af lögum sínum. En markmiðið er ekki síst að draga fram og leggja áherslu á útsetningarnar sem hún hefur unnið á undanförnum áratugum. Björk spjallar okkur við tónleikana og áhrifin sem kófið hefur haft á væntanlega plötu hennar.
    Við heyrum um hugtakið Blackfishing sem hefur fengið aukna athygli síðustu daga vegna frumraunar Little Mix söngkonunnar Jesy Nelson á Bandaríkjamarkaði. Lag hennar, Boyz, byggir á sampli úr P.Diddy smellinum Bad Boys 4 Life og líkir eftir myndbandi hans auk þess sem hún sækir menningararf og útlit svartra bandaríkjamanna - meira að segja húðlitinn.
    Laufey Haraldsdóttir flytur okkur pistil um pistil um vinn sinn, bandaríska uppistandarann John Mulaney. Reyndar veit Mulaney ekkert hver Laufey er - en samband hennar við grínistann er hálf-félagslegt.
    55 min
  • Sýningin okkar, Squid Game, Succession og auðæfalist
    Í Lestinni í dag fjöllum við um umtöluðustu þætti dagsins dag, þætti sem eru orðnir þeir vin­sæl­ustu sem streym­isveit­an Net­flix hef­ur nokk­urn tím­ann fram­leitt. Suður-kóresku þættirnir Squid Game hafa farið sigurför um heiminn. Eins og á annað hundrað milljón jarðarbúa hefur Júlía Margrét Einarsdóttir verið að horfa.
    Á föstudaginn verður frumsýnd nýtt sviðsverk á Loftinu í Þjóðleikhúsinu. Verkið nefnist Sýningin okkar og er sköpun leikhópsins Konserta sem hellti sér út hugmyndir um hið stafræna sjálf þar sem fagurfræði snallsímans er allsráðandi.
    En við ætlum að byrja á list sem fjallar um ævintýraleg auðæfi, list sem dregur fram aðlaðandi en spillandi eðli ofur-ríkidæmis.
    55 min
  • Vellíðan og víma, leikminjar, Ekki einleikið
    Steindór Grétar Jónsson sökkvir sér ofan í vellíðunariðnaðinn svokallaða og skoðar hvernig hugbreytandi efni hafa náð þar vinsældum og útbreiðslu.
    Sigríður Jónsdóttir, sérfræðingur við Leikminjasafn Íslands hefur í mörg horn að líta. Í dag sýnir hún okkur einstakt einkaskjalasafn Indriða Einarssonar.
    Edna er fædd og uppalin í Mexíkó en búsett í Vesturbæ Reykjavíkur. Í nýrri heimildarmynd, Ekki einleikið, Acting out, fylgjumst við með því hvernig hún vinnur úr andlegum veikindum sínum með því að endurleika og sviðsetja erfið atriði af ævi sinni ásamt atvinnuleikurum á sviði Tjarnarbíós.
    55 min
  • Ófærð, beðmál í borginni og samtímamenning Frakka
    Við höldum áfram að spjalla um samtímamenningu ólíkra þjóða. Að þessu sinni höldum við til Evrópu. Anna Gyða Sigurgísladóttir segir okkur hvað ungir hinsegin parísarbúar eru að hlusta á og horfa á - jahh.. Eða ekki horfa á.
    Þriðja þáttaröð Ófærðar eftir Baltasar Kormák hófst í gær. Heitfengi lögreglubangsinn Andri er mættur aftur norður á land til að rannsaka morð. Að þessu sinni þarf hann að sökkva sér ofan í skuggalegan heim mótorhjólagengja og ásatrúar-kakókölts. Sérstakt Ófærðarhlaðvarp er nú framleitt af RÚV en eftir því sem við best vitum er þetta í fyrsta skipti sem opinbert hlaðvarp fylgir leikinni sjónvarpsþáttaröð hér á landi. Við heyrum brot úr hlaðvarpinu Með Ófærð á heilanum í þætti dagsins.
    Kristlín Dís Ingilínardóttir tekur sér far með Lestinni í dag. Í haust hefur hún flutt okkur pistla sem gætu gengið undir yfirskriftinni Beðmál í borginni.
    55 min
  • Lífsreglur samúræjans Birnis
    Á morgun kemur út önnur breiðskífa rapparans Birnis, plata sem íslenskt rappáhugafólk hefur beðið eftir um nokkurt skeið, en það eru þrjú ár frá því að síðasta plata hans, Matador kom út. Þetta er 15 laga plata sem nefnist Bushido, unnin af landsliði íslenskra rapppródúsenta. Birnir Sigurðarson sest um borð í Lestina og ræðir berskjöldun, fíkinefni og lífsreglur samúræja.
    54 min
  • James Bond, Skrattar, Kef Lavík, furðusaga af stolnum bassa
    Hann er svartur, með bleikum og bláum köntum og neðarlega á hann stendur stórum bleikum stöfum Smutty. Hann er kontrabassi, stolinn kontrabassi, sem bassaleikarinn og útvarpsmaðurinn Smutty Smiff spilaði á við tökur á fyrstu plötu sveitarinnar The Rockats í NewYork. Smutty gafst upp á því að leita bassans fyrir 29 árum, en hefur saknað hans í 39. En, bassinn virðist ekki bara kominn í leitirnar, hann er hreinlega kominn í heimsfréttirnar.
    Það eru liðin sex ár frá því að síðasta mynd um njósnara hennar hátignar, drykkjurútinn og kvennabósann James Bond kom út. En Daniel Craig er snúinn aftur í síðasta sinn í hlutverki Bond. Gunnar Ragnarsson nýr kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar rýnir í No Time to Die í þætti dagsins.
    Davíð Roach Gunnarsson fór á stúfana um helgina og kíkti á tónleikalíf Reykjavíkur. Í þætti dagsins fjallar um tvenna útgáfutónleika, en tvær sveitir sem hann hefur fjallað um hér í Lestinni héldu slíka tónleika um helgina. Skrattar fögnuðu útkomu plötunnar Hellraiser IV og Kef Lavík héldu upp á útgáfu Eilífur Snjór í augunum.
    55 min
  • Hjólabretti, #Metoo í fyrirbærafræðilegu ljósi og rúllukraginn
    Þeir eru sígildur klæðnaður, þrunginn merkingu, rúllukragabolirnir.Svartur rúllukragabolur er allt í senn fáguð og afslöppuð flík og hefur verið einkennisbúningur ólíkustu hópa og einstaklinga. Við ræðum við Jóhannes Ólafsson rúllukragaunnanda
    Samskipti og samkennd: #MeToo á mörkum reynsluheima nefnist fyrirlestur sem fer fram á vegum RIKK - Rannsóknastofnunar í jafnréttisfræðum á fimmtudag, en það er Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson doktorsnemi og stundakennari í heimspeki sem beitir greiningartækjum fyrirbærafræðinnar á samfélagsbyltinguna.
    Á Ólympíuleikunum í sumar var í fyrsta skipti í sögu leikanna keppt á hjólabrettum. Þar með eru hjólabrettaiðkun opinberlega orðin húsum hæf, orðin að ólympíuíþrótt, en listin að renna sér á hjólabretti á sér athyglisverða sögu. Steindór Grétar Jónsson sökkvir sér í sögu hjólbrettanna frá jaðarmenningu til redbull og mcdonalds auglýsinga.
    55 min

About Lestin

From the publisher's feed

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

More shows like Lestin

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

214 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

67 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

16 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners