Spegillinn 20. september 2021
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Flokkur fólksins og Framsókn bæta við sig fylgi í nýjasta þjóðarpúlsi Gallup. Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur með rúmlega tuttugu og eins prósents fylgi. Ríkisstjórnin fellur samkvæmt könnuninni.
Fullbólusettu erlendu ferðafólki verður leyft að koma til Bandaríkjanna frá nóvember. Ferðabann vegna COVID-19 faraldursins hefur verið í gildi frá því í mars í fyrra.
Mannréttindi eru brotin á sjúklingum á bráðamóttöku Landspítala, að sögn bráðalæknis. Dæmi séu um að sjúklingar þurfi að bíða eftir plássi á legudeildum í allt að 70 klukkustundir í gluggalausu herbergi.
Bændur á Héraði eru brenndir eftir þurrka sumarsins. Margir þeirra láta nú bora eftir vatni og er langur biðlisti eftir bornum.
Hraunflæði úr eldgosinu við Fagradalsfjall mælist nú rúmlega 150 milljónir rúmmetra og flatarmálið orðið 4,8 ferkílómetrar, samkvæmt nýjustu mælingum Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands.
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands segir að stjórnarmyndunarumboð forsetans, sem forystufólk flokkana fær venjubundið eftir kosningar, eigi sér enga festu í stjórnarskránni. Eina sem sé stjórnskipulega fastur punktur sé að forsetinn beri ábyrgð á að mynduð sé ríkisstjórn í landinu.
Íra grunar að rostungurinn, sem hafði stutta viðdvöl á Höfn í Hornafirði um helgina, sé sá sami og hrellti Íra og fleiri evrópubúa í sumar.
Gul veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir allt landið á morgun.
Lengri umfjöllun:
Ef frambjóðendur lofa útgjöldum þá þarf einnig finna út hvernig eigi að borga. Þá er um tvennt að velja; skattar eða meiri skuldsetning. Þetta segir Katrín Ólafsdóttir hagfræðingur og dósent við Háskólann í Reykjavík. Kristján Sigurjónsson ræddi við Katrínu og spurði hvers vænta mætti í efnahagsmálum landsins á næstu misserum,
Nýr hernaðarsamningur Ástrala, Breta og Bandaríkjamanna kann að marka meiri tímamót en margan myndi gruna. Vísað er til jarðhræringa í utanríkismálum, tilraunar til að skapa nýja heimsmynd. Ragnhildur Thorlacius segir frá.
Bókin ,,The Key Man,? eða Lykilmaðurinn, fjallar um ris og fall pakistansks viðskiptajöfurs, Arif Naqvi. Tveir blaðamenn Wall Street Journal, Simon Clark og Will Louch rekja sögu Naqvi sem höfðaði til milljarðamæringa og stofnanafjárfesta með boðskap um að fjárfesta til að bæta heiminn. Fjárfestar eins og Bill Gates stofnandi Microsoft, þróunarstofnanir og lífeyrissjóðir lögðu alls þrjá milljarða Bandaríkjadala í sjóði Naqvis til að fjárfesta í góðum málefnum í Asíu og Af