Spegillinn 24. ágúst 2021
Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir
Íslensk stjórnvöld hyggjast taka á móti allt að 120 afgönskum flóttamönnum, svo sem fyrrverandi starfsfólki Atlantshafsbandalagsins og fólki sem á fjölskyldu hér á landi.
Heimflutningi þriggja fjölskyldna sem dvalist hafa í Afganistan er lokið. Fólkið komst frá landinu með flugi sem stjórnvöld í Danmörku og Finnlandi skipulögðu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu nú rétt fyrir fréttir. Allir meðlimir fjölskyldnanna þriggja eru ýmist með íslenskan ríkisborgararétt eða dvalarleyfi hér á landi.
Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlögregluþjónn telur ekki þörf á að auka viðveru lögreglu við bólusetningar. Lögregla hefur í tvígang þurft að hafa afskipti af andstæðingum bólusetninga í sumar.
Þrettán ára gamalt hitamet féll á Hallormsstað í dag þegar hitinn fór í 29,3 stig. Rætt við Teit Arason, veðurfræðing á Veðurstofunni og Bergrúnu Örnu Þorsteinsdóttur aðstoðar skógarvörð í Hallormstað
Charlie Watts, trommari The Rolling Stones er látinn, 80 ára aldri.
Tilkynningum um líkamlegt ofbeldi gegn börnum fjölgaði í ár um ríflega fjörutíu og fimm prósent miðað við árið 2019 og tilkynningum um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum fjölgaði um meira en sextíu og fimm prósent. Forstjóri Barnaverndarstofu telur að það að fólk var meira heima í faraldrinum hafi haft áhrif . Alma Ómarsdóttir ræðir við Sigþrúði Guðmundsdóttur, framkvæmdastýru Samtaka um kvennaathvarf, Rannveigu Þórisdóttur, félagsfræðing og sviðstjória hjá Ríkislögreglustjóra og Heiðu Björg Pálmadóttur, forstjóra Barnaverndarstofu.
Ragnhildur Thorlacius fjallar um andspyrnuhreyfingar í Afganistan.
Ríkisstjórn Íhaldsflokksins glímir við stórmál eins og umhverfismál, byggðamál, Covid og Brexit. En flokkurinn tekst einnig á við að lúta forystu forsætisráðherra sem er áberandi reikull í ákvörðunum. Sigrún Davíðsdóttir, segir frá