Spegillinn 23. júní 2021
Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir
Forsætisráðherra segir söluna á Íslandsbanka vel heppnaða, meðal annars vegna þess hve dreifing á eignarhaldi er mikil. Sala á fleiri bréfum í bankanum bíði nýrrar ríkisstjórnar. Rætt við Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra
Farþegar geta þurft að bíða í allt að tvo tíma á Keflavíkurflugvelli eftir því að vottorð þeirra séu skoðuð og þeir sendir í skimun. Þrjátíu og ein flugvél lendir þar á morgun. Rætt við Arngrím Guðmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjón í flugstöðvardeild Lögreglustjórans á Suðurnesjum
Rússar saka áhöfn bresks tundurspillis um að hafa siglt inn í rússneska lögsögu á Svartahafi. Bretar vísa því á bug - segjast hafa verið á úkraínsku hafsvæði.
Ekki verður af sameiningu Húnavatnshrepps og Blönduósbæjar að sinni. Tillaga um að kosið yrði um sameiningu samhliða Alþingiskosningum í haust var felld í gær. Rætt við Ragnhildi Haraldsdóttur, varaoddviti sveitarstjórnar Húnahrepps
Hjólreiðamaður sem hjólar með höndunum er á lokasprettinum eftir um 400 kílómetra hjólaferð um Suðurland, til að minna á mikilvægi hreyfingar fyrir hreyfihamlaða. Rætt við Arnar Helga Lárusson, hjólreiðamann
Lengra efni:
Höggva verður á þann hnút sem er í kringum rammaáætlun svo tryggja megi áfram græna orku, segir forstöðumaður Grænvangs í tilefni af því að fyrsti Loftslagsvegvísir atvinnulífsins var kynntur í dag. Bergljót Baldursdóttir ræddi við Eggert Benedikt Guðmundsson, forstöðumann Grænvangs
Magnús Þorkell Bernharðsson, sérfræðingur í málefnum Mið-Austurlanda, segir að kjör harðlínumanns í embætti forseta Írans breyti ekki miklu, hann framfylgi stefnu klerkaráðsins sem hafi stjórnað nánast öllu í Íran. Bogi Ágústsson talaði við hann.