Hart var tekist á um efnavopn í Úkraínu á fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í dag. Tvær og hálf milljón hefur flúið Úkraínu eftir að innrás Rússa hófst. Gert er ráð fyrir að allt að fjögur þúsund flóttamenn komi hingað til lands. Bjarni Pétur Jónsson tók saman og heyrist í Joe Biden Bandaríkjaforseta, Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra og Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra.
Staðan í uppistöðulónum Landsvirkjunar er lægri en spáð var í byrjun árs og vatnsbúskapur með versta móti. Skerðingar á afhendingu orku verða fram á vor. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við Hörð Arnarson forstjóra Landsvirkjunar.
Landsréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Þorsteins Más Baldvinssonar þar sem Seðlabanka Íslands var gert að greiða honum tæpar 2,7 milljónir í skaða- og miskabætur vegna Samherjamálsins svokallaða. Freyr Gígja Gunnarsson sagði frá.
Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra telur að landsmenn verði að þrauka faraldurinn, ekki standi til að herða sóttvarnir. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir tók saman.
Vegurinn um Vattarnesskriður, milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar, er ófær vegna skriðufalla. Skriður féllu á veginn í morgun en töluvert hefur rignt fyrir austan. Ólöf Ýr Erlendsdóttir tók saman.
Verkefnið Römpum upp Ísland hófst formlega í dag, setja á upp eitt þúsund hjólastólarampa um allt land til að bæta aðgengi. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, var ekki viðstaddur kynningu verkefnisins í Hveragerði eins og til stóð vegna covid-smita á Bessastöðum, en sendi kveðju þaðan.
-------------
Samhliða bardögum í Úkraínu geisar áróðursstríð. Fjölmiðlum hefur verið lokað í Rússlandi og varðar fangelsisvist að segja það sem stjórnvöld þar segja falsfréttir af Úkraínu. mótar afstöðu rússnesks almennings, meirihluti hans styður Pútín. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Elfu Ýr Gylfadóttur, framkvæmdastjóra Fjölmiðlanefndar.
Ávaxtaneysla hefur minnkað, en neysla á sykruðum gosdrykkjum hefur dregist saman. Í gær voru kynntar niðurstöður úr landskönnun á mataræði landsmanna. Þar eru bæði góðar og slæmar fréttir. Þjóðin þarf að borða mun meira af grænmeti og ávöxtum svo að vel sé. Bjarni Rúnarsson ræddi við Hólmfríði Þorgeirsdóttur, Jóhönnu Eyrúnu Torfadóttur og Bryndísi Evu Birgisdóttur.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar frétta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir.