Spegillinn 18. Júní
Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir
Hópur fólks jafnaði sig aldrei eftir kreppuna eftir bankahrunið og segir forseti ASÍ að koma þurfi í veg fyrir að slíkt endurtaki sig. Rætt við Unni Sverrisdóttur, forstjóra Vinnumálastofnunar og Drífu Snædal, forseta ASÍ.
Vísindamenn hjá Íslenskri erfðagreiningu hafa þróað líkan sem spáir fyrir af meiri nákvæmni en áður hversu langt fólk á eftir ólifað . Rætt við Kára Stefánsson, forstjóra íslenskrar erfðagreiningar
Landsréttur sýknaði í dag karlmann sem dæmdur var í sextán ára fangelsi í janúar í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir manndráp.
Kórónuveirusmit í Moskvu hafa þrefaldast síðastliðinn hálfan mánuð. Aðgerðir hafa verið hertar enn frekar í borginni til að stemma stigu við þeim.
Ekkert verður aðhafst til að reyna að koma í veg fyrir að hraun streymi yfir Suðurstrandarveg. Þetta segir Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Lengra efni:
Sigrún Davíðsdóttir segir frá afléttingu sóttvarna og skimunarreglur í Danmörku og fjölgun kórónuveirusmita í Bretlandi.
Kórónuveirusýkingum fjölgar ekki aðeins í Bretlandi heldur líka í Rússlandi, Indónesíu, Portúgal, Pakistan og eflaust víðar. Loka verður sem flestum flóttaleiðum kórónuveirunnnar sem fyrst segir Magnús Gottfreðsson, prófessor í smitsjúkdómum. Bergljót Baldursdóttir ræðir við Magnús
Riksdagen - sænska þingið - fól ríkisstjórninni í vikunni að rannsaka alþjóðlegar ættleiðingar til Svíþjóðar undanfarna áratugi. Ákvörðunin kemur í kjölfar á ítarlegri fjölmiðlaumfjöllun um ættleiðingar erlendis frá, þar sem sterkar vísbendingar eru um blekkingar, þvinganir, lögbrot og í sumum tilfellum hrein og klár mannrán. Kári Gylfason, segir frá en ítarlegri umfjöllun um málið var nýlega í Uppdrag Granskning, fréttaskýringaþætti sænska ríkissjónvarpsins.