Spegillinn 9.6.2020
Umsjónarmaður Bergljót Baldursdóttir
Útför George Floyd, sem lést í vörslu lögreglu í Bandaríkjunum fyrir hálfum mánuði, fór fram í dag að viðstöddu fjölmenni.
Ríkissáttasemjari hefur boðað sáttafund í deilu hjúkrunarfræðinga og ríksins á fimmtudaginn. Hjúkrunarfræðingar vilja að grunnlaun hækki um 25% á samningstímanum. Hjúkrunarfræðingar krefjast þess að laun þeirra hækki um 10% umfram lífskjarasamninginn. Ríkissáttasemjari sá ekki ástæðu til að boða nýjan fund að svo stöddu eftir árangurslausan fund í gær. Í dag boðaði hann hins vegar til næsta sáttafundar á fimmtudaginn. Ótímabundið verkfall á að hefjast eftir tæpar tvær vikur. Arnar Páll Hauksson sagði frá
Til stendur að opna ytri landamæri Schengen-svæðisins fyrsta júlí. Dómsmálaráðherra segir að stefnt sé að opnun landamæra Íslands hvort sem önnur lönd innan svæðisins gera það eður ei.
Þorvaldur Gylfason þótti of viðloðinn stjórnmál til að hljóta meðmæli fjármála- og efnahagsráðuneytisins sem ritstjóri samnorræns fræðitímarits. Hann taldi ráðninguna frágengna en tveimur vikum síðar var hún dregin til baka.
Hæstaréttardómari í Brasilíu hefur úrskurðað að ríkisstjórn Bolsonaro, forseta landsins, beri að birta upplýsingar um þróun Covid-19 farsóttarinnar.
Búast má við töfum á umferð um hringveginn í Mosfellsbæ í allt sumar, en þar eru að hefjast framkvæmdir við tvöföldun Vesturlandsvegar í norðurátt.
Nýlega voru samþykkt lög á Alþingi um vernd uppljóstrara og taka þau gildi um næstu áramót. Þar er í fyrsta sinn komin heildstæð löggjöf um vernd uppljóstrara og er markmið laganna að stuðla að því að upplýst verði um lögbrot og ámælisverða háttsemi og þannig dregið úr henni, eins og segir í lögunum. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Halldóru Þorsteinsdóttur, lektor í lögfræði við Háskólann í Reykjavík.
Fasteignamat næsta árs var kynnt fyrir sléttri viku. Það hækkaði um 2,1% frá fyrra ári. Sveitarfélög miða við fasteignamatið þegar þau leggja á fasteignagjöld. Matið er í raun þak þeirra en skatthlutfall vegna íbúðarhúsa og sumarhúsa má nema allt að hálfu prósenti af fasteignamati.
Það getur verið strembið að meta virði fasteigna, sérstaklega á minni stöðum þar sem eru fáar hreyfingar á markaði. Árlega endurmetur Þjóðskrá virði allra fasteigna á Íslandi, alls ríflega 200 þúsund eigna. Arnhildur Hálfdánardóttir talaði við Margréti Hauksdóttur forstjóra Þjóðskrár