Spegillinn 03.05.2019
Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir
Fjármálaráðherra segir að velta megi fyrir sér hvernig samskipti Isavia ætlar að eiga við skulduga viðskiptamenn í framtíðinni. Hvorki hann né samgönguráðherra gera athugasemdir við afgreiðslu félagsins á skuldum WOW. Rætt við Sigurð Inga Jóhannsson samgönguráðherra
Níu hafa fundist látin eftir að báti með flóttafólki hvolfdi undan ströndum Tyrklands. Til stóð að smygla hópnum til grísku eyjarinnar Lesbos.
Hreiðar Hermannsson hótelstjóri á Stracta hóteli er hættur við að reyna að stofna íslenskt lágfargjaldaflugfélag. Hann vinnur áfram að því að auka sætaframboð til Íslands. Rætt við Hreiðar Hermannsson, hótelstjóra
Valur Lýðsson, bóndi að Gýgjarhóli II í Biskupstungum, var í Landsrétti í dag dæmdur í fjórtán ára fangelsi fyrir að verða bróður sínum að bana í fyrravor. Þetta er helmingi þyngri dómur en Valur hlaut í héraði. Rætt við Helga Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknara
Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir að samningur iðnaðarmanna marki tímamót. Hann eigi eftir að auka lífsgæði félagsmanna. Rætt við Kristján Þórð Snæbjarnarson, formann Rafiðnaðarsambandsins. Arnar Páll Hauksson, ræddi við hann.
Íslensk stjórnvöld hafa styrkt Hamrahlíðarkórinn um fimm milljónir króna, svo kórinn geti sungið á tónleikum Bjarkar Guðmundsdóttur í New York næsta mánuðinn. Rætt við Lilju Alferðsdóttur, menntamálaráðherra
Alvarlegum bifhjólaslysum á þungum bifhjólum hefur fækkað um rúman helming á einum áratug. Sérfræðingur segir ökumenn einfaldlega vera betri en þeir voru. Rætt við Einar Magnús Magnússon, sérfræðingu á öryggis- fræðsludeild Samgöngustofu
Jón Kristinsson, íslenskur arkitekt og frumkvöðull í umhverfismálum segir að Reykvíkingar ættu að koma á jarðlestarkerfi í Reykjavík. Jón er þekktur er víða sem faðir sjálfbærrar byggingarlistar. Rætt verður við hann í Speglinum. Bergljót Baldursdóttir ræddi við hann.
Og við heyrum frægt Bítlalag flutt á Mi'kmaq máli - túlkun sem slegið hefur í gegn í Kanada.
Hætta er talin á að hátt í 90 prósent tungumála heimsins deyi út fyrir næstu aldamót. Árið 2019 er ár frumbyggjatungumála hjá Sameinuðu þjóðunum. Kristján Sigurjónsson sagði frá