Hægt verður að bjarga Notre Dame kirkjunni í París ef steinhvelfing undir timburþakinu sem brann heldur, segir Pétur Ármannsson, arkitekt og sviðsstjóri hjá Minjastofnun.
Þúsundir bíla á Íslandi eru enn með lífshættulegan öryggisbúnað. Öryggisinnköllun hefur staðið yfir síðan 2014. Aðalsteinn Kjartansson segir frá og talar við Teit Atlason og Pál Þorsteinsson.
Rútufyrirtæki og bílstjórar bera alltaf ábyrgð á að tryggja öryggi farþega segir Þórólfur Árnason, forstjóri Samgöngustofu. Hann telur ekki að Samgöngustofa þurfi að auka eftirlit.
Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands segir að það standi upp á stjórnvöld að útfæra tillögur í skattamálum og það fljótt.
Juha Sipilä formaður Miðflokksins í Finnlandi, tilkynnti afsögn sína í dag, flokkur hans beið afhroð í kosningum um helgina. Ásgeir Tómasson sagði frá.
Tafir hafa orðið á flugi á bæði milli landa og innanlands í dag vegna hvassviðris.
---
Pétur Ármannsson, arkitekt og sviðstjóri hjá Minjavernd segir að burðarbogarnir í Nortre Dame virðast vera heilir og hafa staðið eldinn í gær af sér. Notre Dame kirkjan í París var meðal helstu gersema í byggingalist Evrópu. Bergljót Baldursdóttir ræðir við Pétur.
Flugvélar eru lengur á leiðinni milli áfangastaða en nauðsynlegt er. Flugfélög hafa vísvitandi lengt flugtímann til að lenda síður í seinkunum og jafnvel skaðabótum. Pálmi Jónasson tók pistilinn saman.
Norðmaðurinn Frode Berg var í dag dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir njósnir í Rússlandi. Hann var óvænt handtekinn í Moskvu í desember 2017. Síðan hefur hann setið í hinu illræmda fangelsi rússnesku leyniþjónustunnar, Lefortovo. Berg heldur því fram að hann hafi verið gabbaður og ekkert vitað um njósnastarfsemi. Arnar Páll Hauksson segir frá.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir
Tæknimaður: Jón Þór Helgason