Skúli Mogensen, forstjóri Wow air, segir að unnið sé að því með kröfuhöfum og stjórnvöldum að tryggja langtímafjármögnun félagsins. Allir kröfuhafar WOW air, nema Isavia, hafa samþykkt formlega að breyta fimmtán milljarða kröfum sínum í 49 prósenta hlut í félaginu.
Óvissa um kjarasamninga og framtið flugrekstrar gætu haft áhrif á fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar að mati Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra. Oddný G. Harðardóttir fyrrverandi fjármálaráðherra telur ríkisstjórnina ekkert hafa gert til að greiða fyrir kjarasamningum. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir segir frá umræðum á Alþingi.
Íris Róbertsdóttir ,bæjarstjóri í Vestmannaeyjum segir að beint tekjutap vegna loðnubrests fyrir samfélagið sé um sex milljarðar króna. Hún vonar að á fundi sem haldinn er með þingmönnum, fyrirtækjum og fulltrúum sveitarfélagsins og fleirum verði hægt að leggja drög að áætlun um hvernig megi takast á við áfallið. Ágúst Ólafsson ræddi við Írisi.
Matvælastofnun hefur, í samvinnu við Lyfjastofnun, kært vef á íslensku léni til lögreglu og farið fram á að honum verði lokað Herdís M. Guðjónsdóttir, sérfræðingur hjá Matvælastofnun segir að þar hafi verið auglýst ólögleg fæðubótarefni og lyf.
Yfirmaður herráðsins í Alsír krafðist þess í dag að úrskurðað yrði að Abdelaziz Bouteflika forseti væri óhæfur til að stýra ríkinu vegna heilsubrests. Hörð mótmæli hafa verið í höfuðborginni Algeirsborg og víðar í Alsír undanfarnar vikur gegn forsetanum. Ásgeir Tómasson sagði frá.
-----
Allir kröfuhafar WOW air nema Isavia hafa samþykkt formlega að breyta fimmtán milljarða króna kröfum sínum í 49 prósenta hlut í félaginu. Skúli Mogensen forstjóri félagsins segir að sú ákvörðun styrki félagið verulega. Sigríður Dögg Auðunsdóttir ræddi við Skúla.
Talsvert er í að samningar náist milli SA og verkalýðsfélaganna hjá Ríkissáttasemjara. Enn er ósamið um vinnutímabreytingar og launataxta. All útlit er fyrir að tveggja daga verkfall hefjist á fimnmtudaginn.
Eftir óvænta framvindu í breska þinginu er óvissan bæði um Brexit og framtíð Theresu May forsætisráðherra nú komin á hærra stig.Sigrún Savíðsdóttir segir frá.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson