Seðlabankastjóri segir að eftir á að hyggja hafi ákvörðun um neyðarlán til Kaupþings verið röng. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um lánveitinguna sem var kynnt í dag.
Svokölluð upplýsingaröskun og samfélagsmiðlar gera það að verkum að meiri sundrung verður í samfélaginu. Þetta hefur gerst í Bandaríkjunum og nú einnig í Evrópu eins og sjá má eftir Evrópuþingskosningarnar.
Forsætisráðherra segir margt rangt á flugi í umræðunni um þriðja orkupakkann, staðreyndin sé að hann feli ekki í sér afsal yfir orkumálum eða lagningu sæstrengs.
Meginkrafa háskólamanna er að mánaðarlaun verði ekki lægri en 500 þúsund krónur. Þeir hafna krónutöluhækkun launa.
Valdamesti stjórnmálamaður Rúmeníu var í dag dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir fjársvik. Hann beitti sér fyrir lagabreytingum til þess að spilltir stjórnmálamenn gætu sloppið við refsingu.
Vegagerðin hefur náð samkomulagi við pólsku skipasmíðastöðina Crist um afhendingu nýs Herjólfs.
Elfa Ýr Gylfadóttir framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar segir að falsfréttir og upplýsingaröskun á samfélagsmiðlum ýti undir klofning í samfélaginu. Vísbendingar séu um það í nýafstöðnum Evrópukosningum. Bergljót Baldursdóttir talar við Elfu Ýr.
Kjósendur, einkum ungt fólk í Bretlandi, hafnar báðum stóru flokkunum í Evrópukosningunum. Brexitflokkur Nigel Farage sópar til sín fylgi Ukip-flokksins, sem hann yfirgaf. Bæði frjálslyndir demókratar og græningjar, andsnúnir útgöngu Breta úr Evrópusambandinu, stórjuku fylgi sitt. Kjörsókn jókst óvænt, ekki síst vegna áhuga ungra kjósenda. Allt þetta mun óhjákvæmilega hafa áhrif á hver verður næsti leiðtogi Íhaldsflokksins og pólitísku framvinduna almennt. Sigrún Davíðsdóttir.
Samkvæmt skoðanakönnun sem samgöngufélagið gerði virðist meirihluti fyrir því að innheimt verið gjald fyrir að aka á nagladekkjum. Í umferðalagafrumvarpi samgönguráðherra sem nú liggur fyrir Alþingi er ekki kveðið á um slíka gjaldheimtu þó að það hafi verið gert í upphaflegum drögu. Rætt við
Enees Rauf, verkefnisstjóra hjá Óslóarborg og Jónas Guðmundsson formann Samgöngufélagsins.
Umsjón Arnar Páll Hauksson
Tæknimaður Jón Þór Helgason